Leikreglur MiniPlay klúbbsins
Allir sem eru skráðir í MiniPlay klúbbinn eiga möguleika á að vinna gjafabréf hjá MiniPlay. Hér eru leikreglurnar.
Framkvæmdaraðili
Leikurinn er á vegum MiniPlay / Vitta ehf., kt. 490184-1559. Netfang: miniplay@miniplay.is.
Þátttaka
- Allir sem eru skráðir í MiniPlay klúbbinn (póstlista MiniPlay) þegar dregið er taka sjálfkrafa þátt.
- Engin kaupskylda fylgir þáttöku.
- Hvert netfang kemst einu sinni í pottinn í hverjum drætti.
Vinningur
- Í hverjum mánuði er dreginn út einn vinningshafi sem fær gjafabréf hjá MiniPlay að verðmæti 10.000 kr.
- Gjafabréfið gildir bæði í verslun okkar í Tónahvarfi 10 og á miniplay.is.
- Ekki er hægt að skipta vinningnum út fyrir peninga.
Útdráttur
- Dregið er af handahófi úr hópi klúbbmeðlima í fyrstu viku hvers mánaðar.
- Við látum vinningshafann vita í tölvupósti. Ef ekki berst svar innan 14 daga er heimilt að draga nýjan vinningshafa.
Persónuupplýsingar
Netfangið þitt er notað til að senda þér fréttir og tilboð frá MiniPlay og til að hafa samband við vinningshafa. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með tengli neðst í öllum póstum frá okkur.
Annað
MiniPlay áskilur sér rétt til að breyta leikreglum eða hætta leiknum. Breytingar eru birtar á þessari síðu.