Skilmálar

1. Um skilmálana

Þessir skilmálar gilda um kaup neytenda á vörum í netverslun MiniPlay á miniplay.is. Með því að staðfesta pöntun samþykkir þú skilmálana eins og þeir eru þegar pöntunin er gerð. Skilmálarnir og aðrar upplýsingar í netversluninni eru á íslensku.

Ekkert í skilmálunum takmarkar réttindi þín samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum íslenskra laga, þar á meðal laga nr. 16/2016 um neytendasamninga og laga nr. 48/2003 um neytendakaup.

2. Seljandi

MiniPlay er rekin af Vitta ehf.
Kennitala: 490184-1559
VSK-númer: 47650
Heimilisfang félagsins: Lambasel 12, 109 Reykjavík
Verslun MiniPlay: Tónahvarf 10, 203 Kópavogur
Sími: 519 7711
Netfang: miniplay@miniplay.is

3. Verð og vöruupplýsingar

Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður og heildarverð koma fram í greiðsluferlinu áður en þú staðfestir pöntun.

Verð og vöruúrval geta breyst, en breytingar hafa ekki áhrif á pöntun sem þegar hefur verið staðfest.

Við leggjum okkur fram um að vörulýsingar, myndir og verð séu rétt. Ef verð eða vörulýsing er augljóslega röng vegna tæknilegrar villu eða innsláttarvillu höfum við samband við þig eins fljótt og auðið er. Þú velur þá hvort þú staðfestir kaupin á réttum forsendum eða fellur frá þeim og færð fulla endurgreiðslu. Litir á myndum geta verið örlítið breytilegir eftir skjám.

4. Pöntun

Pöntun er bindandi þegar þú hefur staðfest hana og greitt. Þú færð staðfestingu á pöntun í tölvupósti. Kynntu þér staðfestinguna vel og hafðu samband ef eitthvað er ekki í samræmi við pöntunina.

Ef vara reynist ekki til þrátt fyrir að hún hafi verið birt sem fáanleg látum við þig vita sem fyrst. Þú getur þá valið að bíða eftir vörunni, ef hún er væntanleg, eða fá hana endurgreidda að fullu. Við getum einnig stungið upp á sambærilegri vöru, en þér er frjálst að hafna því.

MiniPlay getur hafnað eða aflýst pöntun ef greiðsla fæst ekki staðfest eða rökstuddur grunur er um svik. Hafi greiðsla farið fram er hún þá endurgreidd að fullu.

5. Greiðsla

Hægt er að greiða með þeim greiðsluleiðum sem birtast í greiðsluferlinu hverju sinni, meðal annars með greiðslukorti, Netgíró og Pei, og með gjafakorti MiniPlay. Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar af viðkomandi greiðsluþjónustuaðila. MiniPlay geymir ekki kortanúmer.

6. Afhending

Þú getur fengið pöntunina senda með Dropp eða sótt hana í verslun MiniPlay að Tónahvarfi 10 í Kópavogi. Pantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag. Ef vara er ekki til á lager látum við þig vita og upplýsum um áætlaðan afhendingartíma. Hafi ekki verið samið um annað afhendum við vöruna án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 30 dögum eftir kaupin.

MiniPlay ber áhættuna af vörunni þar til þú, eða aðili sem þú hefur tilnefnt og er annar en flutningsaðilinn, hefur tekið við henni. Ef sending týnist eða skemmist í flutningi skaltu hafa samband við okkur og við leysum málið.

Nánari upplýsingar eru í sendingarskilmálum.

7. Réttur til að falla frá kaupum og skilaréttur

Við netkaup hefur þú lögbundinn 14 daga frest frá móttöku vöru til að falla frá kaupum og fá endurgreitt. Auk þess býður MiniPlay skilarétt í samtals 100 daga frá móttöku vöru gegn inneign, að uppfylltum skilyrðum. Merktar útsöluvörur falla ekki undir 100 daga skilaréttinn. Vörum er skilað í verslun MiniPlay að Tónahvarfi 10. Nánari upplýsingar, þar á meðal um framkvæmd, kostnað og undantekningar, eru í skila- og endurgreiðslustefnu MiniPlay.

8. Gallar

Um gallaðar, skemmdar eða rangar vörur gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Almennur frestur til að kvarta vegna galla er tvö ár frá móttöku vöru og fimm ár ef vöru er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist. Hafðu samband við okkur án ástæðulausrar tafar eftir að galli kemur í ljós. Nánar er fjallað um úrræði í skila- og endurgreiðslustefnu.

9. Persónuupplýsingar

Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu MiniPlay. Samþykki á þessum skilmálum felur hvorki í sér samþykki fyrir markaðssetningu né fyrir ónauðsynlegum vafrakökum. Um það er beðið sérstaklega.

10. Ágreiningur og gildandi lög

Komi upp ágreiningur hvetjum við þig til að hafa fyrst samband við okkur svo leysa megi málið. Takist það ekki getur þú leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Neytendastofa hefur eftirlit með því að farið sé að lögum um neytendasamninga.

Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningsmál sem ekki leysast með öðrum hætti má bera undir íslenska dómstóla.