Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 20. október 2026
Í þessari stefnu kemur fram hvernig MiniPlay safnar og notar persónuupplýsingar þegar þú heimsækir miniplay.is, verslar hjá okkur eða hefur samband við okkur. Vinnslan fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR).
1. Ábyrgðaraðili
Vitta ehf., kt. 490184-1559, Lambasel 12, 109 Reykjavík, sem rekur MiniPlay, ber ábyrgð á vinnslunni. Fyrirspurnir og beiðnir vegna persónuverndar má senda á miniplay@miniplay.is eða í síma 519 7711.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
- Samskiptaupplýsingar: nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang.
- Pöntunarupplýsingar: keyptar vörur, verð, afhendingarmáti, afhendingarstaður og saga pantana.
- Greiðsluupplýsingar: staðfesting á greiðslu og greiðsluleið. Kortaupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustuaðila og MiniPlay geymir ekki kortanúmer.
- Aðgangsupplýsingar: ef þú stofnar aðgang í netversluninni.
- Samskipti: efni fyrirspurna og samskipta við okkur, til dæmis vegna skila eða galla.
- Póstlisti: netfang og skráningarupplýsingar ef þú skráir þig á póstlista.
- Umsagnir: efni sem þú birtir sjálf(ur), til dæmis vöruumsagnir.
- Tæknilegar upplýsingar: til dæmis IP-tala, tegund tækis og vafra og notkun vefsins, sem safnað er með vafrakökum og sambærilegri tækni, sjá 6. kafla.
3. Tilgangur og lagagrundvöllur
- Afgreiðsla pantana, greiðslur, afhending, skil og þjónusta við viðskiptavini, þar á meðal tilkynningar um pöntun. Grundvöllur: efndir samnings.
- Bókhald og aðrar lagaskyldur, til dæmis varðveisla reikninga. Grundvöllur: lagaskylda.
- Öryggi og varnir gegn svikum og rekstur og umbætur á vefnum. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir MiniPlay af öruggum og vel virkum rekstri.
- Markaðspóstur til þeirra sem hafa skráð sig á póstlista. Grundvöllur: samþykki. Þú getur alltaf afskráð þig með hlekk neðst í hverjum pósti.
- Ónauðsynlegar vafrakökur, til dæmis vegna greiningar eða markaðssetningar. Grundvöllur: samþykki.
Samþykki á viðskiptaskilmálum felur ekki í sér samþykki fyrir markaðspósti eða ónauðsynlegum vafrakökum.
4. Hverjir fá upplýsingarnar?
MiniPlay selur ekki persónuupplýsingar. Við miðlum upplýsingum aðeins til aðila sem þurfa á þeim að halda til að veita þjónustuna eða þegar lög krefjast þess:
- Shopify – vefverslunarkerfi og hýsing netverslunarinnar.
- Greiðsluþjónustuaðilar – Teya (greiðslukort), Netgíró og Pei, eftir því hvaða greiðsluleið þú velur.
- Dropp – afhending sendinga.
- Klaviyo – útsending tölvupósts til þeirra sem eru á póstlista.
- Judge.me – umsjón og birting vöruumsagna.
- Meta og Google – vefgreining og auglýsingar, aðeins ef þú hefur samþykkt viðkomandi vafrakökur.
- Opinberir aðilar þegar okkur ber lagaskylda til þess.
Þjónustuaðilar sem vinna upplýsingar fyrir okkar hönd mega aðeins nota þær í þeim tilgangi sem við ákveðum.
5. Flutningur út fyrir EES
Sumir þjónustuaðilar okkar geta unnið upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins, til dæmis í Kanada eða Bandaríkjunum. Í þeim tilvikum byggir flutningurinn á viðurkenndum grundvelli, svo sem ákvörðun um að viðtökuríki tryggi fullnægjandi vernd eða stöðluðum samningsákvæðum.
6. Vafrakökur
Á vefnum eru notaðar vafrakökur og sambærileg tækni. Nauðsynlegar vafrakökur, til dæmis vegna körfu og greiðsluferlis, eru notaðar án samþykkis þar sem vefurinn virkar ekki án þeirra. Aðrar vafrakökur, til dæmis vegna greiningar eða markaðssetningar, eru aðeins notaðar ef þú samþykkir þær í vafrakökuborða vefsins. Þú getur breytt vali þínu eða afturkallað samþykki hvenær sem er.
7. Varðveisla
Við varðveitum persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Bókhaldsgögn, svo sem reikningar, eru varðveitt eins lengi og lög um bókhald krefjast. Upplýsingar á póstlista eru varðveittar þar til þú afskráir þig.
8. Öryggi
Við gerum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingum og glötun.
9. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá aðgang að þeim upplýsingum sem við vinnum um þig;
- fá rangar upplýsingar leiðréttar;
- fá upplýsingum eytt, nema okkur beri skylda til að varðveita þær;
- fá vinnslu takmarkaða;
- andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum og hvenær sem er beinni markaðssetningu;
- fá upplýsingar afhentar á tölvutæku formi (flutningsréttur);
- afturkalla samþykki hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á lögmæti fyrri vinnslu.
Sendu beiðni á miniplay@miniplay.is. Við svörum að jafnaði innan mánaðar og getum þurft að staðfesta hver þú ert áður en beiðni er afgreidd.
10. Kvörtun
Ef þú telur að vinnsla okkar brjóti gegn persónuverndarlögum getur þú leitað til okkar eða lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.
11. Breytingar
Við getum uppfært þessa stefnu, til dæmis ef breytingar verða á rekstri eða lögum. Nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg á vefnum og dagsetning síðustu breytingar kemur fram efst.