Sendingar
Afhendingarleiðir
MiniPlay afhendir pantanir innan Íslands. Í greiðsluferlinu velur þú á milli eftirfarandi leiða:
- Dropp: Sending á afhendingarstað Dropp eða heimsending, eftir því hvað er í boði á þínu svæði. Þær afhendingarleiðir og afhendingarstaðir sem standa þér til boða birtast í greiðsluferlinu.
- Sækja í verslun: Þú getur sótt pöntunina án endurgjalds í verslun MiniPlay að Tónahvarfi 10, 203 Kópavogi, á opnunartíma verslunarinnar. Þú færð tilkynningu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður fer eftir afhendingarleið og áfangastað og greiðist af öllum sendingum. Hann kemur fram í greiðsluferlinu áður en þú staðfestir pöntun. Ekkert gjald er tekið fyrir að sækja pöntun í verslun.
Afgreiðslutími og flutningstími
Afgreiðslutími er sá tími sem það tekur okkur að taka pöntunina saman og koma henni til flutningsaðila. Pantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag. Pantanir sem berast um helgar eða á frídögum eru afgreiddar næsta virka dag á eftir.
Flutningstími er sá tími sem sendingin er í höndum flutningsaðila. Hann ræðst af afhendingarleið og áfangastað.
Ef vara er ekki til á lager eða er í forpöntun látum við þig vita og upplýsum um áætlaðan afhendingartíma. Hafi ekki verið samið um annað afhendum við vöruna án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 30 dögum eftir kaupin.
Ábyrgð á sendingum
MiniPlay ber áhættuna af vörunni þar til þú, eða aðili sem þú hefur tilnefnt og er annar en flutningsaðilinn, hefur tekið við henni. Ef sending týnist eða berst skemmd skaltu hafa samband við okkur á miniplay@miniplay.is og við leysum málið. Þú þarft ekki að beina kröfu að flutningsaðilanum.
Réttar afhendingarupplýsingar
Gættu þess að nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer séu rétt skráð við pöntun. Ef sending berst aftur til okkar, til dæmis vegna þess að hún var ekki sótt, höfum við samband við þig um framhaldið.
Skil
Um skil og endurgreiðslur gildir skila- og endurgreiðslustefna MiniPlay.