Klifurkassi + rennibraut (þrír litir)
Klifurkassinn er einstaklega fjölhæft leikfang þar sem börn geta klifrað og hreyft sig frjálslega sem hjálpar til við að bæta líkamlega getu þeirra og þjálfar meðal annars grófhreyfingar. Hægt er að bæta við rennibraut eða stiga á hvaða hlið kassans sem er og verður leikurinn enn skemmtilegri fyrir vikið.
Klifurkassinn er frábært leikfang fyrir ungbörn, smábörn og eldri börn til að bæta grófhreyfingar, snerpu, jafnvægi og styrk. Klifurkassinn er leikfang sem hentar vel fyrir alla ævintýragjarna klifrara.
Klifurkassinn hentar börnum frá 6 mánaða aldri. Hægt er að nota hann einan og sér eða bæta við stiga og rennibraut. Klifurkassinn, stigar og rennibraut passa einnig við flestar klifurgrindur frá öðrum framleiðendum.
Rennibraut er tilvalin viðbót við KateHaa klifurkassann og klifurþríhyrningana. Hún er með tveimur hliðum, einni með klifurvegg til að klifra og einni til að renna. Rennibrautin festist auðveldlega á klifurgrindurnar með öruggri festingu.
Þessi skemmtilega klifur- og rennibraut er auka áskorun fyrir litla klifrara og eykur sjálfstraust og klifurkunnáttu barna.
Hægt er að festa rennibrautina í fimm mismunandi hæðastillingum og hentar því börnum á öllum aldri. Rennibrautin getur borið allt að 50kg og er framleidd úr hágæða endingargóðum efnum.
Fyrir aukið öryggi fylgir öryggisól með öllum rennibrautum og stigum!
Viltu bæta við: