Skipulagspoki á sætisbak

4,995 kr
Adding to Cart Added to Cart

Til á lager í Miniplay.is verslun

Hægt er að sækja pöntun á opnunartíma ef þú hefur fengið staðfestingu á að pöntun sé tilbúin

Það þarf ekki langa bílferð með börnum til að aftursætið fyllist af dóti. Bækur, leikföng, litir, snarl og drykkir eiga það einhvern veginn til að dreifast um allt. Dooky skipulagsvasinn hjálpar til við að halda utan um dótið og hafa allt sem barnið þarf innan seilingar.

Skipulagsvasinn festist aftan á framsætið og býður upp á hentugt geymslupláss fyrir það sem gott er að hafa með í ferðina – hvort sem það er uppáhaldsbangsinn, bók, teiknidót, leikir, snarl eða drykkur.

Þannig er auðveldara að halda bílnum snyrtilegum og barnið getur haft dótið sitt aðgengilegt án þess að allt endi á gólfinu.

Hjálpar til við að halda aftursætinu snyrtilegu og skipulögðu
Gott geymslupláss fyrir leikföng, bækur, teiknidót, snarl og drykki
Auðvelt fyrir börn að nálgast dótið sitt á ferðinni
Hentar jafnt fyrir stuttar bílferðir sem og lengri ferðalög
Festist aftan á framsæti bílsins
Hagnýt lausn fyrir fjölskyldubílinn

Viltu bæta við: